Þessa síðu gerði ég frá hausti 2006 að hausti 2007. Tók myndir í erg og gríð af öspunum í garði nágrannans útum þvottahúsgluggann minn, en setti inn eina mynd á viku frá því aspirnar höfðu fellt öll sín lauf, unz þær höfðu fellt öll sín lauf aftur að ári. Verkefnið kallaði ég : FRÁ NEKT TIL NEKTAR.
Til glöggvunar má sjá allar myndirnar á Picasahlekk hér að neðan.